Í vikunni fengum við í heimsókn Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur, sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Ásamt því að sýna henni nýja búnaðinn okkar, ræddum við um uppbyggingu Mýsköpunar á svæðinu og hversu mikilvæg sú uppbygging myndi vera fyrir nærsamfélagið. Það var gott að finna fyrir stuðningnum sem við höfum frá sveitarfélaginu.